Gæði, hraði og þjónusta

 

Spírall veitir fjölþætta þjónustu í eftirvinnslu prentgripa. Helstu verkþættir okkar eru flokkun, röðun, gormun bóka, dagatala og kynningarefnis. Við veitum sérhæfða og sveigjanlega þjónustu fyrir prentsmiðjur og auglýsingastofur um land allt. Hafðu samband og við veitum þér tilboð.

 

Okkar hlutverk er að gera þína vöru sérstaka

Við erum sérfræðingar í frágangsvinnu af öllu tagi, allt frá smáum skartgripaöskjum og minnisblokkum til hnausþykkra handbóka, skýrslna og stórra umbúða. Spírall hefur einar fullkomnustu gormunarvélar landsins sem ljá þínum prentgripum faglegt og vandað útlit.

Við bjóðum gyllingar og upphleypingar, heftun, brot og límingu. Allt á einum stað.

Ertu með ófrágenginn prentgrip? Við klárum verkið!